| Deka Steinteppi |
|
| Sunnudagur, 15. Febrúar 2009 16:06 |
Deka steinteppi eru hluti af heildarlausn Gólflagna í gólfefnum.
» Endingargóð Notkunnarmöguleikar: Dæmigerðir notkunarstaðir fyrir Deka Steinteppi eru sýningarsalir, verslanir, skrifstofur og aðrir staðir sem þurfa slitsterkt gólfefni. Deka Steinteppi veita mikla möguleika í hönnun; þeim má litaskipta og til dæmis koma fyrir vörumerkjum í miðju gólfi.Efnislýsing: Deka Steinteppin samanstanda af lituðum eða náttúrulegum sandi sem bundinn er saman með glærri epoxy fjölliðu. Efnið er lagt 5-15 mm þykkt eftir stærð fylliefnis. Ef undirbúningsefni eru tekin með samanstendur gólflögn úr Deka Steinteppi af eftirfarandi þáttum: 1. Topp 4000 leysiefnalausum grunni 2. Topp 4000 Deka Tix bindiefni sem samanstendur af harpix og herði 3. Fyllefni/sandi Deka Steinteppi fást í ótal litum og litasamsetningum, sem fara eftir vali og innbyrðis blöndun sands/fylliefnis.Undirlag: Deka Steinteppi er hægt að leggja á steypu og ílögð gólf. Ennfermur ofan á stein og keramik flísar. Þrif: Deka Steinteppi eru tilvalin á staði þar sem þörf er á snyrtilegu, slitþolnu gólfefni sem er hagkvæmt í þrifum. Þrif á Deka Steinteppi er fyrst og fremst ryksugun sem jafnframt er hægt að fylgja eftir með moppun, þá sérstaklega á svæðum sem mæðir á. Deka Steinteppi þarf að djúphreinsa, þá með lág- eða háþrýstum teppahreinsivélum, tíðni fer eftir umhverfi og álagi. Dæmi um eiginleika: Eftirfarandi eiginleikar Deka Steinteppa hafa verið rannsakaðir:
Hörðnunartími:
Til athugunar: Gæði og áferð Deka Steinteppis fer mikið eftir ástandi undirlagsins. Óslétt undirlag ætti því að jafna með viðurkenndum flotefnum. Vinnsluferli:
|