| Topp 1500 gólfefni |
|
| Mánudagur, 16. Mars 2009 16:32 |
Topp 1500 gólfefni
Kostir: » Áferð eftir vali Notkunarmöguleikar: Dæmigerðir notkunarstaðir Topp 1500 er öll matvælavinnsla, verkstæðisgólf, bílageymslur og þar sem umferð og umgangur er mikill, eða kemiskt álag er til staðar. Topp 1500 er hægt að leggja í kverkar sem húlkíl og einnig yfir önnur fjölliðugólfefni til endurnýjunar. Efnislýsing: Topp 1500 er þriggja þátta fjölliðuefni sem lagt er 2-3 mm þykkt. Það fæst í tveimur gerðum, annars vegar einlitt, lagt úr lituðu bindiefni og ólituðum kvartssandi og hinsvegar úr glæru bindiefni og lituðum kvartssandi sem gefur gólfinu lit. Ef undirbúningsefni eru tekin með samanstendur Topp 1500 gólflögn af eftirfarandi þáttum.
Topp 1500 fæst í 3 staðallitum, grátt, grænt, gult. Topp 1500 með glæru bindiefni fæst í fjölda lita og litasamsetninga. Dæmi um eiginleika: Eiginleikar Topp 1500 hafa rannsakaðir og þá miðað við 20°C hitastig. Niðurstöður urðu eftirfarandi. Hörðnunartími: » gangandi umferð - 24 klst. Vinnsluferli: Áður en Topp 1500 er lagt er mikiklvægt að hafa eftirfarandi í huga .
Lagning Topp 1500 sem og annara fjölliðuefna er vandasamt verk og ætti einungis að vinnast af sérhæfðum verktökum sem kunna með efnin að fara, og hafa yfir að ráða réttum tækjakosti. Gólflagnir er sérhæft fyrirtæki á þessu sviði og hefur langa reynslu og þekkingu sem tryggir góðan árangur. Lagning Topp 1500 samanstendur af eftirfarandi verkliðum:
Með toppfyllingu er ekki einingis átt við efsta yfirborð gólfsins heldur er átt við fyllingu frá neðasta hluta upp til yfirborðsins. Ekki er því einiungis um að ræða þunna lakkfilmu á efsta yfirborði heldur er gólfið jafn níðsterkt í gegn. Þeir sem hafa fjárfes í iðnaðargólfi ættu að athuga að með góðri umhirðu má auka við endingu gólfsind auk þess sem það hels lengur fallegt. Gólfið skal þrifið með réttum efnum til að tryggt sé að til dæmis dekkjaför og önnur illþrífanleg óhreinindi náist af. Þá skal bent á að nýtt gólf getur oft á tíðum verið kjörið tækifæri til að bæta umgengni á vinnustað og þar með eykst líka ending gólfsins. |